<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T11:44:38" skst="DBE" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 11:46:54 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T11:44:38">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að óska ráðherra til
    hamingju með þann kraft sem hlaupinn er í innviðaframkvæmdir og
    samgöngumál en einnig í löggjöfina um jöfnunarsjóð. Það er fyrsta
    spurningin. Við boðuðum að næsti kafli í endurskoðun jöfnunarsjóðs væri að
    skoða grunnskólahlutann og ég vildi spyrja fregna af því. Í öðru lagi
    varðandi samgöngumálin þá var verið að birta niðurstöðu könnunar í dag sem
    bendir til þess að þriðjungur þeirra sem fara um á bíl á
    höfuðborgarsvæðinu myndi helst vilja nota virka ferðamáta. Þar eru það
    almenningssamgöngur og rafhjól sem skora hæst. Í ljósi þessara niðurstaðna
    — ef við mætum þessum stóra hópi yrði umferðin líka miklu betri fyrir þá
    sem vilja halda áfram að keyra — finnst ráðherra koma til greina að
    innleiða einhvers konar ívilnanir vegna rafhjólakaupa svipað og við sáum
    til bílaleigubíla, sem nú fylla göturnar, fyrir nokkrum árum og er vegna
    tiltekinnar gerðar rafhjóla? Hins vegar er spurningin hvort ráðherra sjái
    ekki fyrir sér, kannski þrátt fyrir fréttir fjölmiðla, að framkvæmdir við
    borgarlínu og samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins fyrir
    almenningssamgöngur haldi áfram af fullum krafti. Síðasta spurningin lýtur
    síðan að fjármögnun þessara gríðarlega miklu samgönguverkefna, líka á
    vegum Ganga og brúar, sem er nýja innviðafélagið okkar — hvort ráðherra
    telji ekki ákveðin sóknarfæri í því að uppfæra svokallaða TEN-T kort sem
    er í raun Evrópusambandskort yfir samgöngukerfi landsins sem nær til
    hringvegarins og lykiltenginga því að þá væri hægt að fjármagna þessar
    stóru innviðaframkvæmdir með hagstæðum lánum frá Evrópska
    fjárfestingarbankanum, t.d. inn í þetta félag — hvort það væri ekki
    jákvætt verkefni ráðuneytis og umhverfis- og samgöngunefndar á þessum
    vetri.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>