<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="innvrh." frhr="0" id="r2026-09-11T11:47:03" skst="EyjÁ" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 11:49:30 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T11:47:03">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnirnar.
    Varðandi jöfnunarsjóð og grunnskólaframlögin er vinna við endurskoðun
    hafin. Þetta er flókin vinna en ég vonast til að hún gangi vel fyrir sig.
    Ég hef fylgst svolítið með henni og það var ákall í meirihlutaáliti
    umhverfis- og samgöngunefndar með jöfnunarsjóði um að fara í þessa vinnu.
    Staðan úti á landi varðandi sveitaskólana — ég á ekki von á að þeim fari
    að fækka þannig að það eru alveg forsendur fyrir því að fara í þessa
    vinnu. Varðandi þessa áhugaverðu fyrirspurn um það að einn þriðji þeirra
    sem fara um á bíl á höfuðborgarsvæðinu vilji nota virkan ferðamáta og um
    ívilnanir til rafhjólakaupa þá er þetta hjá fjármálaráðuneytinu og
    umhverfisráðuneytinu, þ.e. varðandi styrktargreiðslur. En
    umhverfisráðuneytið ákvað að takmarka styrktargreiðslur til rafhjóla fyrir
    tveimur árum og það mætti að sjálfsögðu endurskoða þá ákvörðun. Ég tel
    mjög mikilvægt að við beitum okkur frekar fyrir virkum ferðamátum, ekki
    síst úti á landi. Ég sá mjög áhugaverða skýrslu sem við fengum í hendur á
    síðasta ári varðandi virka ferðamáta, hjólreiðar og annað slíkt, úti á
    landi og það er mjög áhugaverður munur, menningarmunur, þar á milli
    sveitarfélaga.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi borgarlínu þá á ég ekki von á öðru en að haldið verði
    áfram með það verkefni. Við þekkjum það bara sjálf að það er mikið ákall
    eftir þessu. Við þurfum ekki annað en að sitja í umferðinni hvað það
    varðar. Það tengist virkum ferðamátum og líka almenningssamgöngum að taka
    á þessum umferðarteppum sem eru hér á höfuðborgarsvæðinu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi fjármögnun Ganga og brúar þá kom ég inn á það í fyrri
    ræðu minni að það er heimild til eiginfjáraukningar, hlutafjáraukningar,
    framlagi til eigin fjár, í það félag í formi reiðufjár eða annarra
    tekjuberandi eigna. Það verður markaðsdagur í næstu viku í Hörpu til að
    kynna félagið fyrir fjárfestum og við bindum miklar vonir við það og að
    það muni breyta — það getur orðið gríðarlega stórt. Varðandi fjármögnun á
    höfuðborgarsáttmálanum er í 4. gr. höfuðborgarsáttmálans kveðið á um
    flýti- og umferðargjöld eða þá fjármögnun með öðrum hætti og það eru
    ákvæði sem þarf að fara að vinna eftir strax 2030. Það er meiri háttar
    verkefni að koma því af stað.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>