<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T11:49:41" skst="DBE" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 11:51:09 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T11:49:41">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég vil þakka ráðherra fyrir glimrandi svör og
    góð. Það er gott að heyra að við eigum von á grunnskólahluta jöfnunarsjóðs
    þegar þeirri vinnu er lokið. Ég skil vel að það geti verið flókin vinna en
    minni jafnframt á að það er skynsamlegt að vinna það á frumstigi með
    nefndinni þannig að við fáum innsýn í það. Ég fagna tóninum varðandi bæði
    rafhjól og borgarlínu og heyri að ég þarf að taka rafhjólin upp við
    umhverfisráðherra hér síðar í dag, eða einhver fyrir mína hönd sem fer í
    þá umræðu. Ég tek undir þetta varðandi fjármögnun samgöngusáttmálans, við
    þurfum að koma því fyrir vind. Ég veit að tímans vegna náði ráðherra
    kannski ekki að ávarpa TEN-T kortið og uppfærslu þess, en ég vonast til
    þess að það verði eitt af mikilvægum verkefnum vetrarins auk þess sem ég
    lauma þeirri hugmynd á flot að sirka einu sinni á ári væri gott að eiga
    stóran fund með innviðaráðherra um framkvæmd markmiðskafla eða
    aðgerðaáætlunar samgönguáætlunar sem stundum gleymist í umræðu um einstaka
    verkefni. Ég geri það kannski í byrjun nýs árs.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>