<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="innvrh." frhr="0" id="r2026-09-11T11:51:18" skst="EyjÁ" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 11:52:53 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T11:51:18">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinni
    fyrirspurnina. Varðandi grunnskólaframlagið þá er það mjög áhugavert.
    Þegar grunnskólinn var fluttur til sveitarfélaganna var útsvarið hækkað.
    20% af þeirri hækkun fóru til sveitarfélaga til frjálsrar notkunar og 20%
    í jöfnunarsjóð. Endurskoðun á grunnskólaframlaginu felur í sér að lækka
    þessi 20% niður, kannski niður í 17 eða 18%, þannig að sveitarfélögin hafi
    meiri pening til frjálsrar notkunar; jöfnunarsjóður myndi minnka við það.
    Það er gríðarlega mikilvægt og þá er spurningin hvaða sveitarfélög spari
    mest og hvernig það raðast niður. Ég tek heils hugar undir það sem hefur
    verið sagt varðandi rafhjól og aðra virka ferðamáta og ég tel að við getum
    unnið þrekvirki þar. Reykjavíkurborg hefur svo sannarlega gert það með
    öllum sínum hjólreiðastígum. Varðandi fjármögnun höfuðborgarsáttmálans þá
    er það sérstakt verkefni. Það er gríðarlega mikilvægt verkefni og það
    tengist þessum flýti- og umferðargjöldum og við þurfum líka að huga að
    fjármögnuninni hjá Göngum og brú sem lýtur að veggjöldum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég þakka ábendinguna varðandi TEN-T kortin <ns:bjalla/> sem ég svo
    sannarlega skoða og líka ábendingu um að hafa stóran fund um framkvæmd
    markmiða samgönguáætlunar. Það er atriði sem er ekki oft í umræðunni um
    samgönguáætlun. Þar er fyrst og fremst verið að horfa á framkvæmdatölurnar
    en ég tek það svo sannarlega til mín.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>