<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T11:53:08" skst="IngD" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 11:55:30 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T11:53:08">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. innviðaráðherra
    fyrir yfirferðina um sína málaflokka. Mig langar að koma inn á nokkur
    atriði en ráðherra hefur sagt, reyndar ekki í dag en á fyrri stigum, að
    það sé, eðlilega, krafa um nútímavæðingu innviða. Hún er hávær hvert sem
    farið er og ég vil segja að það sé bara eðlileg krafa og réttmæt. Krafa er
    um bundið slitlag á malarvegi, sterkt símasamband, styttri vegalengdir og
    fleiri jarðgöng. Þetta eru allt fullkomlega eðlilegar kröfur enda sú
    ríkisstjórn sem ráðherrann á aðild að búin að hækka skatta svo verulega á
    venjulegt vinnandi fólk í landinu að það hálfa væri nóg. Þetta eru
    skattahækkanir sem hafa að miklu leyti verið settar á með vísan til þess
    að það vanti fjármagn til vegaframkvæmda þannig að það er eðlilegt að fólk
    ætlist til þess að þetta fari í vegina. En ríkisstjórninni finnst ekki nóg
    um og boðar enn frekari skattahækkanir á þetta sama fólk. Ráðherra hefur
    líka sagt að ríkisstjórnin hafi lagt fram skýra stefnu um uppbyggingu
    innviða í landinu og að það sé verið að gera stóra hluti í samgöngumálum.
    Ég vil bara benda á það að það er framkvæmdin sem skiptir máli og
    fjármögnun, eðlilega.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En aðeins um jarðgangamálin vegna þess að ég veit að hv. þm. Njáll
    Trausti Friðbertsson kom aðeins inn á það í sínu innleggi. Ráðherra og
    ríkisstjórnin öll hefur sagt að framkvæmdir við Fljótagöng, sem eru á
    vegum hins nýstofnaða innviðafélags Göng og brú ohf., hefjist af fullum
    þunga árið 2027. Það er þekkt að Fljótagöng eru ekki arðbær framkvæmd og
    þurfa þess vegna framlög frá ríkinu. Mig langar að biðja ráðherra um að
    upplýsa mig hvar áætluð framlög ríkisins til þessa verkefnis sé að finna í
    frumvarpi til fjárlaga vegna þess að ég fann það ekki í fljótu bragði.
    <ns:bjalla/> Síðan langar mig að spyrja ráðherrann: Hvar í þessu
    fjárlagafrumvarpi birtast áform ríkisstjórnar um að treysta stoðir hinna
    dreifðu byggða og jafna búsetuskilyrði?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>