<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="innvrh." frhr="0" id="r2026-09-11T11:55:40" skst="EyjÁ" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 11:57:35 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T11:55:40">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Varðandi nútímavæðingu vegakerfisins, bundið
    slitlag, fjarskipti og annað slíkt þá höfum við svo sannarlega unnið
    þrekvirki, íslenskt samfélag. Við erum fámenn þjóð í stóru landi. Við erum
    fjórir einstaklingar á hvern ferkílómetra, um 400 þús. manns í 103.000 km²
    landi. Við höfum sannarlega unnið þrekvirki en betur má ef duga skal og
    það er gríðarleg þörf á því að gera betur, ég geri mér fulla grein fyrir
    því.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi skattahækkanir og annað slíkt þá eru tekjustofnarnir ekki
    markaðir. Við vinnum eftir fjárlögum og við ætlum okkur svo sannarlega að
    hafa hallalaus fjárlög og koma niður vaxtastigi í landinu. Það er okkar
    fyrsta verkefni. Þess vegna er þetta gríðarlega aðhald. Það hefur aldrei
    verið svo að allur peningur af bifreiðum fari til vegasamgangna.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi framkvæmdir við Fljótagöng þá get ég bent hv. þingmanni á
    það að í greinargerðinni með fjárlögunum, um heimild varðandi
    hlutafjáraukningu, kemur fram, með leyfi forseta:</ns:mgr>

    <!--https://www.althingi.is/altext/pdf/158/s/0001.pdf-->

    <ns:mgr>„Til að félagið geti tekið að sér ábyrgð á fjármögnun og framkvæmd
    Fljótaganga kemur til skoðunar að auka við hlutafé félagsins þannig að það
    hafi fjárhagslega burði til að standa undir verkefninu og hraða framvindu
    þess. Slík hlutafjáraukning gæti verið í formi reiðufjár sem nemur hluta
    af stofnkostnaði verkefnisins eða annarra tekjuberandi eigna.“</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það sem kemur fram í greinargerðinni er það framlag sem mun sjá
    til þess að hægt verði að vinna þetta hjá Göngum og brúm. Við gerum okkur
    vel grein fyrir því að þetta er ekki arðbær fjárfesting hvað það
    varðar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég vona að ég hafi svarað öllum spurningum hv. þingmanns.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>