<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T11:57:47" skst="IngD" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 11:59:06 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T11:57:47">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Hann
    staðfestir það raunar að það eru engir fjármunir eyrnamerktir Fljótagöngum
    í fjárlögum. Og það er alveg rétt, betur má ef duga skal. En mig langar
    aðeins að ræða kílómetraskattinn sem ég veit að er raunar ekki beint á
    ábyrgðarsviði ráðherrans en samgöngumálin, byggðamálin og
    sveitarstjórnarmálin eru það sannarlega; 16% hækkun á kílómetraskattinum.
    Þetta er náttúrlega alveg svakalegt og þetta er aðgerð sem bitnar hvað
    harðast á þeim sem lengst þurfa að aka vegalengdirnar, á verstu vegunum og
    hafa ekki það val í samgöngum sem er hér á höfuðborgarsvæðinu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég vil meina að þetta bitni harðast á landsbyggðinni og ég vil
    minna á að nú þegar hafa nokkur samtök sveitarfélaga ályktað gegn þessum
    áformum og kallað þau landsbyggðarskatt. Þess vegna vil ég spyrja hæstv.
    ráðherra: Er ekki svolítið sannleikskorn í því að þetta sé kallaður
    landsbyggðarskattur og telur ráðherrann í alvöru þessa aðgerð verjandi,
    komandi úr landsbyggðarkjördæmi?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>