<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="innvrh." frhr="0" id="r2026-09-11T11:59:14" skst="EyjÁ" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 12:00:40 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T11:59:14">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Varðandi kílómetragjaldið og hækkun þess þá er
    það ekki á málefnasviði mínu. Ég get hins vegar sagt það að í gamla
    kerfinu var bensíngjald þannig að ef þú keyrðir langar vegalengdir þá
    borgaðir þú hátt bensíngjald og vöru- og eldsneytisgjöld sem þar voru voru
    afnumin og sett í kílómetragjald. Og sá sem keyrir mikið borgar líka meira
    kílómetragjald heldur en sá sem keyrir minna. Alveg sama varðandi
    bensíngjaldið þannig að tala um þetta sem landsbyggðarskatt, það er ekki
    svo. Þessi umræða átti sér stað fyrir tveimur árum, árið 2024, og í fyrra
    líka. Þá fórum við mjög vel yfir þetta allt saman og þetta bitnar ekki
    verr á landsbyggðinni en öðrum landshlutum. Það var líka skoðað
    sérstaklega varðandi fátækt fólk. Það var ekki þannig. Rannsóknir sýna
    það. Við erum að breyta kílómetragjaldinu, hafa þetta eins og á rafbílum,
    það er það sem verið er að gera. Það er alveg rétt að ef þú keyrir meira
    þá borgar þú meira kílómetragjald, en þú borgaðir líka meira bensíngjald
    ef þú keyrðir meira í gamla kerfinu. Það er enginn munur þar á, þannig að
    ég vísa þessu algerlega til föðurhúsanna. <ns:bjalla/> Á árunum 2010–2017
    voru 1,7% af þjóðarframleiðslu tekjur af bifreiðum og þær verða núna 1,6%
    þannig að við erum enn þá undir því sem var áður fyrr.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>