<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T12:00:50" skst="EBB" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 12:02:43 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T12:00:50">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Mig langar að sjálfsögðu að byrja á því að
    þakka hæstv. ráðherra fyrir hans framsögu hér og þessar fínu umræður sem
    hafa átt sér stað og fínar spurningar sem hér hafa komið fram. Nú er það
    svo, og það ætti kannski ekki að koma neinum á óvart, að áhugasvið mitt
    liggur á sveitarstjórnarstiginu og eitt af aðaláherslumálum okkar
    Viðreisnarmanna varðandi sveitarstjórnarstigið er að það verði eflt og að
    við komum upp betri stuðningi við það stig. Því langar mig aðeins að fá að
    heyra frá ráðherra, af því að nú erum við að fara aftur í eða halda áfram
    með endurskoðun á sveitarstjórnarlögunum, hvernig hann sér fyrir sér að
    við getum nýtt okkur þessi fjárlög sem nú eru með ákveðnum hætti til að
    efla sveitarstjórnarstigið. Þá langar mig sérstaklega að nefna
    sóknaráætlanir landshluta vegna þess að það er gríðarlega mikilvægt
    verkefni. Ég fagna því mjög sem kemur fram í fjárlagafrumvarpinu, að
    sóknaráætlanir landshluta verði áfram þróaðar sem farvegur fyrir stuðning
    við svæði, og því er mjög mikilvægt að fá alla vega svona línur frá
    ráðherranum um það hvernig hann sér það fyrir sér.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi samgönguhlutann langar mig að nefna sérstaklega
    fjarskipti. Það væri gott að fá að heyra aðeins frá ráðherranum hvernig
    það kemur fram í áætluninni okkar hér vegna þess að það er stórt og
    mikilvægt verkefni, ekki síst sem öryggismál á öllu landinu. Ég kem betur
    að því í seinna erindi mínu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>