<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="innvrh." frhr="0" id="r2026-09-11T12:03:01" skst="EyjÁ" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 12:04:58 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T12:03:01">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina.
    Varðandi sóknaráætlanir er reyndar lækkun þar en undanfarin ár hefur
    fjárlaganefnd komið með aukainnspýtingu, núna á þessu ári 120 milljónir og
    140 milljónir tímabundið, og við gerum ráð fyrir og treystum því að það
    verði áfram svo. Sóknaráætlanir eru gríðarlega mikilvægt tæki til
    atvinnuuppbyggingar á landsbyggðinni. OECD hefur komið hingað til lands að
    skoða þetta og Norðmenn hafa líka skoðað þessar áætlanir sem eru mjög,
    mjög mikilvægar og þarf mikið að standa vörð um.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi sveitarstjórnarstigið í heild og fjárlögin þá er
    frumvarpið til laga um ný sveitarstjórnarlög fyrst og fremst réttarbætur.
    Það er ákveðinn hvati þar til frekari sameiningar varðandi það að íbúar
    sjálfir geti farið fram á sameiningu, 10% íbúa í ákveðnum sveitarfélögum
    undir ákveðinni stærð geta farið fram á sameiningarviðræður, og þar er
    hægt að ná gríðarlegum sparnaði í opinberum rekstri, tel ég, mikil
    tækifæri. Ég mun koma með og mæla fyrir byggðaáætlun núna í október og þar
    verða nýjar áherslur. Þar eru 30 nýjar áætlanir eða aðgerðir sem við
    teljum að muni verða til bóta fyrir sveitarfélög landsins, svo sannarlega.
    En við þurfum, og það tel ég mjög mikilvægt, að fara að stuðla að því að
    það komi stærri sveitarfélög í landinu. Við erum með sveitarfélög niður í
    50 manns og þau ráða ekki við verkefnið. Það er spurning hvenær við getum
    farið að tala um sveitarfélag sem sveitarfélag.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég held að þetta séu stóru línurnar hvað þetta varðar. Ég vona að
    ég hafi svarað öllum spurningum hv. þingmanns en hann minnir mig á það ef
    svo er ekki.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>