<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T12:05:06" skst="EBB" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 12:06:15 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T12:05:06">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir svörin
    og góðar undirtektir. Ég vil bara leggja áherslu á það að ég styð
    ráðherrann heils hugar í þeim áætlunum sem hann er að leggja fram varðandi
    samgöngubætur, enda veitir ekki af vegna þeirra innviðaskulda sem við erum
    að takast á við í dag. En ég hef auðvitað áhyggjur, eins og fleiri, af því
    að það verði ákveðin verkefni sem eru öryggistengd, sérstaklega í
    samgöngumálum, sem gleymist eða falli milli skips og bryggju. Og þá bara
    ítreka spurningu mína varðandi fjarskiptin, að fá aðeins skýringar á því.
    Það kemur ágætlega fram í fjárlagafrumvarpinu varðandi
    ljósleiðaravæðinguna í þéttbýli og eins líka ljósleiðaravæðingu lögheimila
    í þéttbýli að það er mjög mikilvægt verkefni fyrir þjóðarheildina, vegna
    þess að þetta er verkefni sem er búið að bíða lengi og þarf svo sannarlega
    að takast á við. En ég ítreka þetta með fjarskiptin, að fá aðeins að heyra
    hvernig ráðherra sér það fyrir sér.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>