<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="innvrh." frhr="0" id="r2026-09-11T12:06:23" skst="EyjÁ" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 12:07:40 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T12:06:23">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Varðandi fjarskiptin er það þannig að við erum
    eitt nettengdasta samfélag heims. Það er gríðarlegur árangur sem við höfum
    náð. Við höfum ljósleiðaravætt bóndabæina og þéttbýli að sjálfsögðu á
    markaðsforsendum. Það er núna verið að klára litlu þorpin þar sem ekki eru
    markaðsforsendur. Við munum klára það innan skamms, hvort það eru eitt eða
    tvö ár í það, þannig að það er gríðarlega mikilvægt. Ég hef sjálfur stutt
    tvítengingu ljósleiðara í þéttbýli og m.a. farið upp á Skagaströnd til að
    taka skóflustungu hvað það varðar. Þá er verið að tengja Skagaströnd úr
    báðum áttum. Tvítengingin er gríðarlega mikilvæg og það er verið að vinna
    í því líka samkvæmt áætlun. Varðandi fjarskipti á vegum úti þá minnir mig
    að það eigi að klára á stofnvegunum, hvort það er árið 2028, a.m.k. á
    þessu kjörtímabili, sem verður komið símasamband á öllum stofnvegum
    landsins. Það er mikið verkefni og við erum að byrja að huga að tengingu á
    tengivegunum. Netöryggis- og fjarskiptaáætlun verður lögð fram á þinginu
    nú í vor og ég bind miklar vonir við að það verði áætlun með góðum
    aðgerðum.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>