<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T12:07:54" skst="IIsak" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 12:09:45 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T12:07:54">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir hans ræðu hérna
    áðan. Okkur verður tíðrætt um innviðaskuld í vegakerfinu. Hæstv. ráðherra
    kom inn á að það væru ekki markaðir tekjustofnar hvað það varðar og ég
    átta mig alveg á því. En þá vekur það líka furðu að þegar við vorum að
    hækka skatta hér við síðustu fjárlög var verið að tala um að þær tekjur
    sem kæmu af þeim skattstofnum, m.a. kílómetragjaldi og fleiri skatttekjum,
    vörugjöldum o.fl., myndu renna til samgöngumála. Vissulega hækkuðu
    tilfærslur til samgöngumála á síðasta ári fyrir þetta ár einmitt vegna
    þess að það var svo mikil þörf á að fara í innviðauppbygginguna og vinna á
    þessari innviðaskuld. Svo sjáum við að það er enn verið að hækka skatta en
    ráðherra segir að það séu ekki markaðir tekjustofnar og að það eigi ekki
    að renna endilega inn í samgöngumál en við sjáum að kílómetragjaldið á að
    skila ríkissjóði um 4 milljörðum. Svo sjáum við að hagræðingin til
    samgöngumála er bara svipuð tala. </ns:mgr>

    <ns:mgr>Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra. Við sjáum að
    fjárfestingarframlög til samgöngumála eru að lækka úr 43,8 milljörðum í
    40,1 milli fjárlagafrumvarpa 2026 og 2027. Lækkunin til Betri samgangna er
    2 milljarðar en síðan er líka verið að hagræða þegar kemur að viðhaldi og
    nýframkvæmdum. Þetta gerist þremur mánuðum eftir að Alþingi samþykkti
    samgönguáætlun fyrir árin 2026–2040. Hver er nettóbreytingin á
    fjárveitingu til vegakerfisins sjálfs milli ára þegar tímabundin framlög
    eru tekin úr myndinni og hvaða verkefni samgönguáætlunarinnar, sem er
    nýsamþykkt, frestast? Hvernig þróast viðhaldsskuld vegakerfisins árið 2007
    miðað við þessar fjárveitingar?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>