<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="innvrh." frhr="0" id="r2026-09-11T12:09:55" skst="EyjÁ" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 12:11:29 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T12:09:55">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Við erum enn þá að auka fé til viðhalds. Við
    erum að fullfjármagna vetrarþjónustu og við erum að halda sjó í
    almenningssamgöngum. Það eru engin verkefni sem frestast, svo það liggi
    skýrt fyrir. Það sem við erum að gera miðað við síðustu ríkisstjórn er að
    árið 2024 voru þau að leggja 12,8 milljarða kr. til viðhalds vega.
    Núverandi ríkisstjórn bætti 3 milljörðum við síðasta sumar. Í ár erum við
    að fara í 17, 5 milljarða í heild. Næsta ár erum við að fara í 17,6
    milljarða í viðhaldi. Framkvæmdin er samkvæmt samgönguáætlun. Fyrri
    ríkisstjórn var með áætlað að fara í 261 milljarða kr. á fyrstu fimm árum
    þeirrar tillögu sem þau lögðu fram árið 2023. Við erum að fara í 351
    milljarða í framkvæmdafé samkvæmt samgönguáætlun, hækkun um 90 milljarða.
    Vetrarþjónustu líka. Það var veruleg vanfjármögnun þar. Við erum að setja
    tæpum 14 milljörðum meira í það á fyrsta tímabilinu. Jarðgöng; það hafa
    ekki verið grafin ein einustu jarðgöng síðan 2017 með Dýrafjarðargöngum.
    Þeim jarðgöngum var lokið árið 2020. Við erum að fara að hefja
    jarðgangaborun á næsta ári og ég býð hv. þingmann innilega velkominn við
    þá opnun. Við erum svo sannarlega að fara að fjármagna til framtíðar með
    innviðafélaginu þannig að við erum klárlega að standa okkar plikt hvað
    þetta varðar miðað við fyrri ríkisstjórn. Munurinn núna á milli ára í
    viðhaldi er að fara upp í 17,6 milljarða. Við hefðum gjarnan viljað fara
    hærra en það er aðhald í gangi og við ætlum að slá niður
    verðbólgu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>