<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T12:11:38" skst="IIsak" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 12:12:57 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T12:11:38">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég vil þá spyrja hreint út og kannski fá bara stutt
    svar: Er þá ekki verið að hagræða þegar kemur að viðhaldi og nýframkvæmdum
    á næsta ári hjá Vegagerðinni? Miðað við þær tölur sem ég hef séð er
    töluverð hagræðing þegar kemur að því og það hlýtur að hafa áhrif á
    framkvæmdir. En mig langar líka til að spyrja út í skattahækkanir og
    hagræðingar í málaflokknum, vegna þess að nú skiptir gríðarlega miklu máli
    að við eflum byggðir um allt land. Við sjáum hér að það á að skera niður
    farsæld barna um 1,1 milljarða. Sóknaráætlanir landshlutanna eru að lækka
    um 400 milljónir. Það á að skera niður atvinnuráðgjafa á landsbyggðinni en
    samt sem áður er eitt af markmiðunum í fjárlögum hjá málaflokki ráðherrans
    að auka möguleika barna og unglinga og ungmenna í dreifðum byggðum til
    þátttöku í íþrótta- og æskulýðsstarfi og á sama tíma er verið að skera
    niður þennan hluta þegar kemur að farsæld barna. Þarna fer ekki alveg
    saman hljóð og mynd þannig að ég myndi gjarnan vilja fá að heyra
    þetta.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi framkvæmdirnar sem eru núna í samgönguáætlun. Miðað við
    þessi fjárframlög sem er verið að leggja til núna, munu þá engin verkefni
    falla út af borðinu sem voru samþykkt í samgönguáætlun þegar kemur að
    nýframkvæmdum?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>