<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="innvrh." frhr="0" id="r2026-09-11T12:13:08" skst="EyjÁ" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 12:14:23 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T12:13:08">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Varðandi hagræðingu. Það er að sjálfsögðu
    alltaf verið að hagræða í kerfinu og hagræðingin hefur engin áhrif á
    framkvæmdir. Sóknaráætlanir og atvinnuráðgjafar eru ekki raunveruleg
    hækkun. Það sem gerðist í fyrra var að fjárlaganefnd bætti í og sú viðbót
    er ekki inni í núverandi fjárlögum. Ég vonast svo sannarlega til þess að
    fjárlaganefnd horfi til þess í meðferð málsins. Það hefur engin áhrif á
    nýframkvæmdir hvað þetta varðar. Varðandi farsældina þá er þetta í fyrsta
    lagi ekki á mínu málefnasviði, þetta er einungis varðandi útgreiðslu
    gegnum jöfnunarsjóð. Auðvitað þarf að ræða betur við sveitarfélögin um
    framhald verkefnisins og það sem hefur lofað góðu en að sjálfsögðu er
    þetta líka krafa til sveitarfélaganna um hagræðingu og aðhald varðandi
    þessa 1,1 milljarða sem er verið að minnka um. Ég veit ekki til þess að
    verið sé að falla frá neinum nýframkvæmdum í þessu aðhaldi, svo það liggi
    skýrt fyrir. Það er ekki verið að falla frá neinu. Hvort það sé einhver
    tilfærsla í framkvæmdatöflum og tíma og annað slíkt er ég ekki með
    upplýsingar um núna.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>