<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T12:14:36" skst="ÓA" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 12:16:39 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T12:14:36">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. ráðherra fyrir
    sína yfirferð hér og láta hann hreinlega vita að ég styð hann auðvitað í
    því að taka til við að draga úr innviðaskuldinni og ég held að við höfum
    alveg talað ágætlega um það á síðasta þingi að það skipti gríðarlegu máli
    að við myndum halda sjó í þeim efnum. Þess vegna verð ég að viðurkenna að
    ég varð fyrir örlitlum vonbrigðum þegar ég sá þessa áætlun hér. Ég gerði
    ráð fyrir að við myndum eftir sem áður bæta í varðandi samgöngurnar því að
    það er alveg innstæða fyrir því og ég þarf nú ekki að minna ráðherrann á
    að það var farið í ótrúlegustu skattahækkanir fyrir síðustu fjárlagagerð,
    m.a. í veiðigjöldum, vörugjöldum og kílómetragjaldi og maður gerði ráð
    fyrir því að það myndi endurspeglast í þessari áætlun og einnig það sem
    verið er að leggja til núna, þ.e. hækkun á kílómetragjaldinu. Það eru
    vonbrigði. En það er mikilvægt að við höldum áfram að reyna að ná niður
    þessari innviðaskuld.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mig langar til þess að forvitnast af því að ég sé hvergi Göng og
    brú þegar skoðuð eru helstu verkefni og framkvæmdir. Ég velti því fyrir
    mér hvort því félagi hafi ekki verið ætlað neitt hlutverk á næsta ári. Ég
    gerði eiginlega ráð fyrir því af því að við horfum t.d. á uppbyggingu á
    Kjalarnesi og það var m.a. það sem var inni í samgönguáætlun, sem dæmi
    reyndar. En ég gerði ráð fyrir að Göng og brú yrði hér inni og ég velti
    fyrir mér: Hvernig stendur á því að það er ekki gert ráð fyrir því í neinu
    af þeim verkefnum sem hér eru?</ns:mgr>

    <!--sagði: hvort þeim hafi ekki verið ætlað neitt hlutverk - setti inn "því félagi"/st-->
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>