<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="innvrh." frhr="0" id="r2026-09-11T12:16:48" skst="EyjÁ" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 12:19:09 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T12:16:48">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna.
    Varðandi kílómetragjaldið, sem ég kom kannski ekki nógu vel inn á áðan, þá
    kemur kílómetragjald á landsbyggðinni ekki verr við landsbyggðina en
    bensíngjaldið. Bifreiðar úti á landi eyða meiru, það er t.d. meira verið
    að keyra á stærri bílum, Land Crusier og slíkum bílum, sem eyða meira
    bensíni og borga meira bensíngjald. Þarna er einungis verið að miða við
    kílómetrafjöldann þannig að það að halda því fram að þetta sé
    landsbyggðarskattur eins og kom fram hérna áðan er einfaldlega rangt. Það
    þarf að skoða þetta nánar hvað það varðar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi Göng og brú og helstu verkefni þá á það að vera
    sjálfstætt félag, svokallað C-félag. Það er ákvæði í 6. gr. um
    hlutafjáraukningu. Það kemur fram í greinargerðinni á bls. 63, minnir mig,
    ég var að lesa það upp hérna áðan, að það er gert ráð fyrir því að ríkið
    muni setja fé í formi reiðufjár eða annarra tekjuberandi eigna inn í
    félagið svo það geti farið í þau verkefni sem það mun fara í. Það er
    sjálfstætt félag. Það er mjög mikilvægt. Það tekur sínar eigin ákvarðanir
    og þá er mjög mikilvægt að við séum ekki, Alþingi Íslendinga eða
    ríkisvaldið, að skipa því fyrir. Ég mun hins vegar gera samninga við
    félagið eða ég geri ráð fyrir að gera samninga við félagið varðandi
    flutning á Sundabraut yfir til félagsins og líka Fljótagöng. Sá samningur
    getur kveðið á um að þeir sjái um fjármögnun á Fljótagöngum, verkefninu,
    og hann getur líka kveðið á um það að Vegagerðin sjái um útboð og
    verkkaupaeftirlit en svo komi fjármögnun frá — þetta verður
    fjármögnunarfélag hvað varðar Fljótagöngin. Þannig mun þetta virka. Það er
    það sama með Sundabraut. Hún mun fara inn í félagið á ákveðnum tímapunkti.
    Sá tímapunktur getur verið hvenær sem er.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég skora á hv. þingmann og allan þingheim að koma á markaðsdaginn
    sem verður í næstu viku þar sem við kynnum félagið fyrir fjárfestum sem er
    gríðarlega mikilvægt. Það væri óeðlilegt að við værum hér að kveða á um
    verkefni Ganga og brúar sem er sjálfstætt félag. Við bindum miklar vonir
    við það. Við erum að nota sveigjanleika einkaframtaksins í því félagi. Ég
    hef lesið skýrslur um það, t.d. frá Svíþjóð, þegar þeir skoða Nye Veier í
    Noregi — það er það sem er fyrst og fremst verið að horfa á. Þá eru þeir
    ekki bundnir af fjárlögum, geta skuldbundið sig til lengri tíma utan
    fjárlaga.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>