<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T12:19:20" skst="ÓA" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 12:20:28 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T12:19:20">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin og ætla kannski
    ekki að munnhöggvast við hann um þetta en ég skil það alla vega þannig að
    Göng og brú hafi þá frjálsræði til að semja við hvern sem það félag vill
    og það sé þá ekki sjálfgefið að Vegagerðin sinni þeim verkefnum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Aðeins hérna í lokin varðandi jöfnunarsjóðinn, hæstv. ráðherra
    benti hér réttilega á að það hefði verið tekið upp nýtt módel hjá
    jöfnunarsjóðnum eða reiknilíkan og það hefði reynst vel. Mig langar til að
    heyra aðeins ofan í ráðherrann: Á hverju byggir hann þessar upplýsingar um
    að reiknilíkanið hafi reynst vel? Er það af samtölum við sveitarfélögin
    eða var gert einhvers konar gæðamat á þessu? Ég vil alla vega nefna það að
    ég veit a.m.k. um eitt sveitarfélag sem fer mjög illa út úr reiknilíkaninu
    eins og það birtist núna og er verulega frábrugðið því sem áætlað var, en
    það er Borgarbyggð. Ég vænti þess að Borgarbyggð hafi verið í einhverjum
    samtölum m.a. við ráðherrann út af því.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>