<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="innvrh." frhr="0" id="r2026-09-11T12:20:38" skst="EyjÁ" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 12:22:16 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T12:20:38">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Varðandi Vegagerðina og Göng og brú þá eru
    samskipti þar gríðarlega mikilvæg. Vegagerðin mun enn þá gegna
    lykilhlutverki í samgönguframkvæmdum og það er eigandi að öllu
    samgöngukerfinu og allra samgöngumannvirkja og er veghaldari á öllum vegum
    landsins. Göng og brú er viðbót og verkefni sem fara þar inn verða unnin
    þar og það léttir á verkefnastöðu hjá Vegagerðinni, hún getur sinnt betur
    þeim verkum, tekið að sér önnur verkefni eða flýtt þeim verkefnum sem þar
    eru. Fjármögnunin á Göngum og brú á að vera sjálfbær og það segir t.d.
    beinlínis með Sundabraut að hún á að vera greidd af veggjöldum. Það er
    ekki ætlast til þess að ríkið sé að greiða það. Við getum tekið fleiri
    mannvirki sem geta staðið undir sér. Við erum að taka eitt verkefni sem
    stendur ekki undir sér og þá þarf ríkið að koma inn með eigið fé til að
    tryggja það. Þannig að þetta er viðbót við núverandi kerfi þar sem
    Vegagerðin sér um allar framkvæmdir og við bindum miklar vonir við þetta.
    En þetta félag þarf að sjálfsögðu að þroskast og fara hægt af stað eins og
    öll önnur félög og sjá hvað verður. <ns:bjalla/></ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi jöfnunarsjóð þá er kerfið núna einfaldara. Það hefur
    verið reynt margoft að koma með frumvörp um jöfnunarsjóð. Okkur tókst að
    samþykkja frumvarp á síðasta vori <ns:bjalla/> og líkanið á að vera
    einfaldara og réttlátara. Vissulega getur vel verið að það séu ákveðin
    vandamál á einhverjum svæðum og við getum skoðað það, svo sannarlega.
    <ns:bjalla/> Sum sveitarfélög voru að fá stóran hluta tekna sinna frá
    jöfnunarsjóði. En við getum farið alveg sérstaklega yfir það. Ég hef þær
    upplýsingar beint úr ráðuneyti mínu að þetta hafi gengið vel.</ns:mgr>

    <ns:mgr><ns:forseti skst="HildS">Forseti beinir því til hv. þingmanna og
    hæstv. ráðherra að virða ræðutíma.</ns:forseti></ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>