<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T12:22:46" skst="IngD" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 12:24:52 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T12:22:46">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Aftur þakka ég hæstv. innviðaráðherra fyrir
    yfirferðina hér áðan. Mig langar í þessu seinna innleggi mínu að ræða
    aðeins við ráðherrann um farnetsþjónustumálin. Ég hef í nokkur skipti
    tekið þessi mál upp við ráðherrann en það eru miklar áhyggjur og óþægindi,
    og raunar hefur skapast hættuástand á landsbyggðinni, vegna útfösunar 2G
    og 3G fyrir 4G og 5G. Það var sammerkt með þeim sem komu fyrir umhverfis-
    og samgöngunefnd á síðasta þingvetri að þeir höfðu þungar áhyggjur af
    verri tengingum sem skapar óöryggi og raunar hættuástand. Ég vil spyrja
    hæstv. ráðherra: Af hverju var svo nauðsynlegt að slökkva á 2G og 3G um
    leið og 4G og 5G var innleitt með öllum þeim óþægindum, óöryggi og
    hættuástandi sem slíkt hefur haft í för með sér, sérstaklega fyrir hinar
    dreifðu byggðir landsins? Af hverju eru nú fleiri holur í dreifikerfinu en
    áður? Og það sem meira er: Hvers vegna fylgdi aldrei fyrri svörum ráðherra
    að Ísland væri fyrst Evrópuþjóða að slökkva alveg á 2G og 3G? Hvers vegna?
    Hvers vegna var þessi ákvörðun tekin um útfösunina og hvers vegna var
    undirbúningurinn ekki vandaðri en raun ber vitni? Sé svarið sem ég mun fá
    hér á eftir þess eðlis að þetta sé viðskiptaleg ákvörðun, að þetta sé
    viðskiptalegs eðlis, þá er það svar fullkomlega óviðunandi. Þetta er fyrst
    og síðast öryggismál og slíkar ákvarðanir eru ekki teknar á viðskiptalegum
    grunni. Ráðherra hefur svarað því til að þetta verði lagað á
    kjörtímabilinu. Það svar er einnig óboðlegt nema ríkisstjórnin sé
    hreinlega að fara frá í dag eða á morgun. Þetta er óboðlegt svar fyrir þær
    byggðir og þá íbúa landsins sem nú búa við óöryggi og ná sumpart ekki í
    112.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>