<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="innvrh." frhr="0" id="r2026-09-11T12:25:04" skst="EyjÁ" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 12:27:17 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T12:25:04">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Varðandi ákvörðun um útfösun á 2G og 3G þá var
    sú ákvörðun tekin árið 2022, svo að það liggi fyrir. Ég tók ekki þá
    ákvörðun. Það gerðu hins vegar markaðsaðilar. Þetta var gert á
    viðskiptalegum forsendum. Það er ekki heimild í lögum til að grípa inn í
    það en við erum búin að óska eftir skýrslu frá Fjarskiptastofu varðandi
    þessa útfösun og það var mjög ítarleg beiðni þar sem spurt var út í alla
    þætti þessa máls. Varðandi tíðniheimildirnar þá kynntu fjarskiptafélögin
    þessi áform um endanlega lokun á 3G um áramótin 2025. Þá kallaði
    Fjarskiptastofa eftir frekara áhættumati og greiningu á áhrifum
    lokunarinnar. Endanlegri lokun var í kjölfarið frestað fram á mitt ár
    2026, eða um eitt ár, og byggði framkvæmdin á áhættumati félaganna og
    mótvægisaðgerðum, stigskiptri framkvæmd og upplýsingagjöf. Samkvæmt
    tíðniheimildum má útbreiðslan ekki verða lakari en með 2G og 3G.
    Fjarskiptastofa hefur beint tilmælum til félaganna um að uppfylla þau
    skilyrði og hyggst kortleggja útbreiðslu á landsvísu nú í september með
    aðkomu erlends sérfræðifyrirtækis en síðasta sambærilega mæling var gerð
    árið 2023. Varðandi rauðu tækin, símtæki sem leita í 2G og 3G þegar hringt
    er í neyð, þá voru þau 30.000 í ársbyrjun 2026, um 6.000 í júní og rúmlega
    4.000 í ágúst. Við vinnum áfram að því að fækka þessum tækjum í samstarfi
    Fjarskiptastofu, fjarskiptafyrirtækja og Neyðarlínu. Ég held að ástæðan
    fyrir því að verið var að gera þetta sé sú að við erum ótrúlega nettengd
    og framarlega í fjarskiptamálum. Varðandi úttektina sem ég óskaði eftir, á
    því hvers vegna framkvæmdin hefði ekki gengið eins vel og áætlað var þrátt
    fyrir gríðarlegan undirbúning, þá vænti ég þess að fá skýr svör frá
    Fjarskiptastofu hvað þetta varðar. <ns:bjalla/> Ég vona að þetta svari því
    helsta sem þetta mál varðar.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>