<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T12:27:28" skst="IngD" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 12:28:43 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T12:27:28">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Já, ákvörðun
    var tekin árið 2022 af fjarskiptafyrirtækjum. Ákvörðun um þetta er
    viðskiptalegs eðlis. Þetta er fullkomlega fáránlegt. En ég fékk ekki svör
    við því hvers vegna Ísland var fyrst Evrópuþjóða til að slökkva alveg á 2G
    og 3G. Hvers vegna var Ísland fyrst þjóða til þess? Mér þætti vænt um að
    fá svör við því. Mig langaði aðeins að ræða ferjumálin. Það kom upp erfið
    og alvarleg staða í sumar vegna skyndilegs brotthvarfs Baldurs úr þjónustu
    á Breiðafirði og hafði það veruleg áhrif á samgöngur, ferðaþjónustu og
    atvinnurekstur á svæðinu á viðkvæmum tíma. Við sem komum að þessu máli með
    einum eða öðrum hætti erum sammála um að það sé nauðsynlegt að koma í veg
    fyrir að slíkt komi upp aftur og ég veit að ráðherra er sama sinnis. Ég
    veit alveg fullkomlega að hann er sama sinnis. Þess vegna vil ég spyrja
    ráðherra hvernig hann hyggst fyrirbyggja að viðlíka aðstæður komi upp
    aftur. Þessu tengt langar mig að spyrja: Er Herjólfur III, gamli
    Herjólfur, orðinn haffær? Það skiptir líka máli í þessu samhengi.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>