<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="innvrh." frhr="0" id="r2026-09-11T12:28:53" skst="EyjÁ" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 12:30:39 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T12:28:53">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég ítreka að þessi ákvörðun um útfösunina var
    tekin árið 2022 og þá í samstarfi við Fjarskiptastofu. Þótt kröfur séu
    gerðar um öryggi og gæði allrar fjarskiptaþjónustu eða farnetsþjónustu er
    hún ekki skilgreind í lögum sem neyðar- og öryggisfjarskiptaþjónusta
    heldur starfrækt á markaðslegum forsendum á ábyrgð einkaaðilanna. Engin
    lagaleg úrræði eru til staðar til að skylda fjarskiptafyrirtækin til að
    viðhalda úreltum farnetskerfum enda væru slíkar skyldur mjög íþyngjandi á
    jafn litlum markaði og Ísland er í alþjóðlegum samanburði þar sem rekstur
    farnetskerfanna felur í sér mikla landfræðilega útbreiðslu yfir
    hlutfallslega fáa viðskiptavini. Þetta er grundvallaratriði. Varðandi það
    þá réðu einkaaðilar tímasetningunni og engin þjóð hefur treyst sér til að
    banna afnám á 2G og 3G. Þetta er að vissu leyti framþróun, við erum að fá
    5G og 6G. Þegar 5G kemur til sögunnar þá er það betri þjónusta og á að
    vera sama dekkun. <ns:bjalla/> Það eru hins vegar tækin sem eru
    úti.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi þetta með Baldur þá erum við svo sannarlega að vinna í
    því að þetta gerist ekki aftur. Við erum komin með eitt öflugasta
    dýpkunarfyrirtæki heims, <ns:bjalla/> a.m.k. í Evrópu, Jan De Nul, til að
    sjá um dýpkun í höfninni á Suðurlandi, í Landeyjum, og það er búið að
    kaupa tvo varamótora til að tryggja <ns:bjalla/> að viðbragðið verði meira
    ef vélin bilar og líka ef höfnin lokast. Það breytir því ekki að þetta
    verður líka erfiður vetur, eða getur orðið það. Herjólfur III er að verða
    haffær og við sjáum hvað við gerum þegar þar að kemur.</ns:mgr>

    <ns:mgr><ns:forseti skst="HildS"> Forseti minnir þingmenn og ráðherra á að
    virða ræðutíma.</ns:forseti></ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>