<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T12:30:57" skst="SVS" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 12:33:28 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T12:30:57">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv.
    innviðaráðherra fyrir ágætar umræður hér í dag. Engu að síður er það nú
    þannig að þegar maður situr í þingsal og hlustar á hæstv. ráðherra þá
    vakna oft fleiri spurningar en maður kom með hér inn í salinn til að byrja
    með. Mig langar að byrja á að spyrja hæstv. ráðherra út í hið ágæta
    innviðafélag Göng og brú og fjármögnunina. Jú, það er 6. gr. heimild í
    lögum til að setja hlutafé inn. Það er hins vegar ekkert fjármagn í
    fjárlögunum eyrnamerkt þessum verkefnum, ekki ein króna. Það hefur alveg
    verið ljóst og var algerlega ljóst í umræðunni hér um Fljótagöng og
    innviðafélagið að félag um Fljótagöng getur ekki starfað á markaðslegum
    forsendum. Til að þau göng geti orðið að veruleika þarf að koma til
    ríkisaðstoð. Hvernig sér hæstv. ráðherra þetta fyrir sér? Hér erum við að
    tala um hallalaus fjárlög með 5 milljarða kr. afgangi, 4,7. Fljótagöng, ef
    það á að fara í þau, myndu alltaf koma inn á A1-hluta ríkissjóðs vegna
    þess að félagið er þeim megin í lífinu, það getur ekki starfað á
    markaðslegum forsendum, það eru ekki markaðslegar forsendur fyrir því að
    þetta félag starfi öðruvísi en með ríkisstuðningi. Hvernig sér hæstv.
    ráðherra þetta raungerast? Erum við að tala hér um fjárauka þar sem
    fjármagnið mun koma inn?</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það sem er enn þá ótrúlegra hérna og ég vildi fá að spyrja um er
    að í fjárlögunum <ns:bjalla/> kemur fram að undirbúningur og framkvæmd við
    Fljótagöng séu innan ramma. Ég spyr bara hæstv. ráðherra: Innan hvaða
    ramma <ns:bjalla/> þar sem það er ekki ein króna í verkefnið í fjárlögunum
    og það er sérstaklega stjörnumerkt í samgönguáætlun sem án
    fjármögnunar?</ns:mgr>

    <!--.segir Fljótagöng geta ekki starfað á markaðslegum forsendum. Talar síðar um félag svo ég breyti í "félag um Flj. getur ekki starfað".-->
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>