<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="innvrh." frhr="0" id="r2026-09-11T12:33:48" skst="EyjÁ" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 12:35:33 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T12:33:48">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnirnar
    varðandi Fljótagöng. Ég hvet hann eindregið til að lesa það sem stendur í
    greinargerð fjárlagafrumvarpsins á bls. 163. Ég las upp úr því hér áðan og
    það er óþarfi að endurtaka það. Það segir í 6. gr. að það sé verið að koma
    með eigið fé inn í félagið. Það getur verið, eins og kemur fram, í formi
    reiðufjár sem nemur hluta af stofnkostnaði verkefnisins, þ.e.
    Fljótagangaverkefnisins, eða annarra tekjuberandi eigna. Það er þannig sem
    þetta verður unnið. Hins vegar er undirbúningskostnaður innan ramma,
    undirbúningskostnaður við göngin. Framkvæmdakostnaður er svo fjármagnaður
    sérstaklega eins og kemur fram í frumvarpinu. Þetta mun byggjast á því að
    innviðaráðuneytið og félagið semja um framkvæmdina, umgjörðina o.s.frv.
    Fjármálaráðuneytið mun sjá til þess að fjárveiting verði veitt sem rætt er
    um í þessari umræddu 6. gr. heimild. Það getur þá tekið eigið fé, notað
    reiðufé, þá borgar það verktökum, fyrir vinnuna, eða tekur lán út eignina
    sem veð o.s.frv. Framkvæmdakostnaður er fjármagnaður sérstaklega eins og
    kemur fram í frumvarpi til fjárlaga. Í ár eru það hjá okkur 150 milljónir
    í undirbúning framkvæmda. Eins og kemur fram í lögum um innviðafélag þá
    mun innviðaráðherra semja við félagið um verkefni. Svo mun
    fjármálaráðherra í samráði við innviðaráðherra færa þegar byggðar eignir
    þar inn. Þetta er í 4. gr. í lögum um innviðafélag.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>