<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T12:35:42" skst="SVS" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 12:36:52 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T12:35:42">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið en engu
    að síður er ég enn þá pínulítið týndur og þarf að fá betri útskýringar frá
    hæstv. ráðherra hvað þetta varðar. Er það þá ekki alveg ljóst, miðað við
    svör hæstv. ráðherra, að Fljótagöng munu kalla á fjárauka á næsta ári til
    að brúa þann kostnað sem ríkið þarf að bera af framkvæmdinni? Það var
    alveg ljóst í umræðunni um innviðafélagið að Fljótagöng falla ekki undir
    markaðslegan hluta félagsins sem getur staðið utan A1-hluta. Ríkið þarf að
    borga 85%, ef ég man rétt, af Fljótagöngum. Það hlýtur þá að koma fjárauki
    á næsta ári til að greiða hlut ríkisins í þessum fyrsta fasa. Ef ég man
    rétt var áætlað í samgönguáætlun að það væru um 2,5 milljarðar sem það
    kostaði að fara af stað 2027.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>