<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="innvrh." frhr="0" id="r2026-09-11T12:37:03" skst="EyjÁ" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 12:38:31 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T12:37:03">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég gleymdi einu atriði og það er varðandi
    Hornafjarðarfljót. Það á að hefja gjaldtöku núna og sú gjaldtaka, það
    tekjustreymi, mun fara inn í innviðafélagið, annaðhvort er tekjustreymið
    flutt beint, vegurinn og veghaldið hjá Vegagerðinni eða vegurinn plús
    veghaldið til innviðafélagsins, það eru þrjár sviðsmyndir hvað það varðar.
    Svo eru það líka Vaðlaheiðargöng sem eru skuldlaus, tekjuberandi eign
    fyrir innviðafélagið Göng og brú. Þá erum við komin með tekjuberandi
    eignir og svo að sjálfsögðu kemur hlutafjáraukningin. Ég skora á hv.
    þingmann að bera málið undir fjármálaráðherra líka varðandi tekjur og
    Fljótagöng. Það er alveg hárrétt að veggjöld munu ekki standa undir þeim.
    En til þess að félagið geti tekið að sér ábyrgð á fjármögnun og framkvæmd
    Fljótaganga þá kemur til skoðunar að auka hlutafé félagsins þannig að það
    hafi fjárhagslega burði til að standa undir verkefninu. Það er það sem við
    erum að gera með núverandi 6. gr. heimild, sem ég vísaði á. Það er fjallað
    um þetta mjög ítarlega á bls. 163 í greinargerð með frumvarpi til
    fjárlaga. <ns:frammíkall/> Nei, það er eigið fé. Það er eiginfjárheimild
    sem kemur svo inn, <ns:bjalla/> annaðhvort í formi reiðufjár eða
    tekjuberandi eigna. Á endanum er það þannig að það eru samningar okkar við
    innviðafélagið. Vegagerðin er að vinna á fullu að undirbúningnum og það er
    gert ráð fyrir útboði í byrjun næsta árs.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>