<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="dómsmrh." frhr="0" id="r2026-09-11T12:38:55" skst="ÞorbG" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 12:44:04 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T12:38:55">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Fjárlög ársins 2027 marka ákveðin tímamót. Nú er
    stefnt að hallalausum fjárlögum en í tæpan áratug hefur framtíðin verið
    tekin að láni. Það er af ástæðu að hallalaus fjárlög hafa ekki verið
    niðurstaðan árum saman. Það er vegna þess að verkefnið er erfitt. Það
    kallar á aðhald og það kallar á skýrari forgangsröðun. Heildarfjárframlög
    sem heyra undir dómsmálaráðuneytið eru 79,4 milljarðar. Það jafngildir um
    4,5% af áætluðum heildarútgjöldum ríkissjóðs sem nema alls um 1.765
    milljörðum. Öryggi almennings er frumskylda ríkisins og þess vegna er
    minni aðhaldskrafa til lögreglu, ákæruvalds og dómstóla en í mörgum öðrum
    málaflokkum. Stærstu málaflokkarnir og umfangsmestu fjárfestingarnar eru á
    sviði öryggismála. Þar vega þyngst lögregla, landhelgisgæsla og fangelsi.
    Fjárheimildir til þessara verkefna nema rúmum 52 milljörðum á næsta ári. Á
    síðasta ári styrktum við þessa málaflokka varanlega og verulega. Varanleg
    framlög til Landhelgisgæslu Íslands voru aukin um 1,3 milljarða. Um 1,2
    milljarðar fóru til lögreglu vegna fjölgunar lögreglumanna og um 230
    milljónir til Fangelsismálastofnunar. Það skiptir máli að þessi auknu
    framlög eru varanleg, þau halda sér í fjárlögum 2027 þrátt fyrir almennt
    aðhald. Þá liggur líka fyrir að Ísland hefur nú skuldbundið sig til að
    verja 1,5% af vergri landsframleiðslu í öryggis- og varnarmál. Ég ætla að
    leyfa mér að segja að fyrir herlausa þjóð þá liggur í mínum huga í augum
    uppi að fjárfest verði í að styrkja borgaralega innviði landsins,
    landhelgisgæslu og einingar eins og sérsveit, greiningardeild og
    almannavarnir.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Forseti. Aðhald í þessu frumvarpi á ekki að bitna á grunnþjónustu
    í framlínu. Við leitum fyrst hagræðingar í stjórnsýslu og skipulagi. Fyrr
    á árinu var t.d. samþykkt frumvarp um að sameina níu sýslumannsembætti í
    eitt. Það var mál sem snerist um minni yfirstjórn, betri þjónustu og betri
    meðferð fjármuna. Á haustþingi legg ég fram frumvarp um mestu
    skipulagsbreytingar á lögreglu í áratug. Með stærri og öflugri
    lögregluembættum byggjum við upp meiri getu löggæsluliðsins á landinu
    öllu. Markmiðið þar er ekki hagræðing hagræðingarinnar vegna heldur
    öflugri löggæsla. Samhliða verður kynnt ný löggæsluáætlun til næstu fimm
    ára en sú síðasta rann út árið 2023. Þannig höfum við um nokkra hríð verið
    án stefnu í þessum efnum. Nú mótum við skýra stefnu í löggæslumálum til að
    mæta áskorunum næstu ára.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Aðeins um fangelsismál en þar verða stigin stór
    skref í ár. Undirbúningur að byggingu fyrsta öryggisfangelsis landsins
    gengur vel og við erum búin að fjármagna að fullu 1. áfanga. Í fjárlögum
    2027 er gert ráð fyrir 3,9 milljörðum vegna framkvæmdanna. Þannig erum við
    í góðu færi til að fara vel af stað með þetta verkefni. Við erum líka að
    undirbúa uppbyggingu björgunarmiðstöðvar í Skógarhlíð og stefnum að því að
    ljúka verkefninu á fyrri hluta næsta árs. Á málefnasviði réttinda
    einstaklinga, trúmála og stjórnsýslu eru heildarútgjöld um 20 milljarðar.
    Hér undir falla m.a. útlendingamál en einnig málaflokkarnir sýslumenn og
    trúmál. Fjárveiting dómsmálaráðuneytisins til útlendingamála á næsta ári
    eru rúmlega 2,4 milljarðar og þar er þess vegna gert ráð fyrir lækkun um
    34% á milli ára. Það er lækkun sem um munar. Við höfum þegar séð verulegan
    árangur af þeim breytingum sem ráðist hefur verið í og það er að skila sér
    í minni útgjöldum. Á tímabilinu 2023–2025 hefur umsóknum um alþjóðlega
    vernd fækkað um 58% og langstærsti hluti umsækjenda nú er fólk frá
    Úkraínu. Á sama tíma hafa heildarútgjöld til útlendinga lækkað um rúma 4
    milljarða eða 20%.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég ætla að nefna hér í lokin mikilvægan áfanga sem hefur náðst
    hvað varðar sóknargjöld. Framlag til sóknargjalda hækkar varanlega um 200
    milljónir og með því tryggjum við fyrirsjáanleika og stöðugleika um
    fjármögnun þeirra. Ég ætlaði að nefna hérna líka stuttlega framlög til
    jafnréttis- og mannréttindamála sem nema um 400 millj. kr. Þetta er það
    helsta frá dómsmálaráðuneytinu og ég hlakka til umræðunnar við þingmenn
    hér á eftir.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>