<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T12:44:28" skst="GÞÞ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 12:46:37 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T12:44:28">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir ágætis inngang
    og það er auðvitað af mörgu að taka þegar kemur að mikilvægum málum sem
    heyra undir hæstv. ráðherra. Ég ætlaði hins vegar bara að nefna hér þrennt
    sem ég vildi kannski fá svör hæstv. ráðherra við. Í fyrsta lagi hefur
    verið mikil umræða um það hvernig gengið var fram í kjölfar hins
    svokallaða fjármálahruns, bankahrunsins, sem hafði auðvitað mikil áhrif,
    efnahagslega, en ágætlega vannst nú úr því í samanburði við aðrar þjóðir
    þó að skaðinn hafi auðvitað verið mikill. En af gildri ástæðu hefur
    formaður Sjálfstæðisflokksins, hv. þm. Guðrún Hafsteinsdóttir, komið fram
    með þingsályktunartillögu um að setja af stað rannsókn á störfum
    réttarvörslu- og eftirlitsaðila í kjölfar fjármálahrunsins. Ég held að það
    sé óhjákvæmilegt að fara í það og ég held að við munum aldrei geta lokað
    þeim málum fyrr en við höfum gert það og líka lært af því. Það ætti að
    vera orðið nógu langt síðan til að við getum tekið málefnalega umræðu um
    það og skoðað það mál vel, þannig að ég spyr hæstv. ráðherra hvort hún
    styðji ekki slíka rannsókn.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Sömuleiðis myndi ég vilja spyrja um tvennt og kannski er ekki hægt
    að svara því öllu nákvæmlega en þó vildi ég heyra viðhorf ráðherrans.
    Annars vegar varðandi skaðabótalögin, sérstaklega varðandi líkamstjón og
    örorku, hvort við ætlum ekki að fara að endurskoða þann lagabálk og skoða
    hann sérstaklega í samræmi við það sem hefur gerst hjá nágrannalöndunum,
    og síðan að endingu varðandi sóknargjöldin. Eins og við þekkjum hefur
    verið gríðarlega mikil skerðing þar. Það snýr ekki bara að þessari
    ríkisstjórn eða viðkomandi hæstv. ráðherra en augljóst er að við verðum að
    hafa meira gagnsæi og sátt um það fyrirkomulag.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>