<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="dómsmrh." frhr="0" id="r2026-09-11T12:46:50" skst="ÞorbG" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 12:48:57 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T12:46:50">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir spurninguna sem
    ég skil sem svo að hafi verið þríþætt. Í fyrsta lagi er það spurning um
    fjármálahrunið og þá vinnu sem þáverandi stjórnvöld fóru í, frumvarp
    Björns Bjarnasonar um sérstakan saksóknara, geri ég ráð fyrir, og vinnu í
    kjölfar þess, af því að þetta er nú umræða sem við höfum átt hér í þingsal
    áður. Mín afstaða til þessa málaflokks hefur verið sú að verði farið í þá
    vinnu að gera þennan kafla, sem er stór og veigamikill í íslenskri sögu,
    bæði aðdragandi fjármálahrunsins og eftirmál, þá skoðum við það
    heildstætt. Með því á ég við að færi Alþingi þá leið að skipa hér
    rannsóknarnefnd myndum við ekki eingöngu taka fyrir verk embættismanna
    heldur líka hver aðdragandinn var varðandi lagasetningu, að við skoðum
    andrúmsloftið og leikfléttuna í heild sinni. Ég veit til þess, eins og hv.
    þingmaður nefnir, að formaður Sjálfstæðisflokksins hefur lagt fram
    tillögu, eða a.m.k. boðað tillögu um þetta, og þá finnst mér skipta máli
    fyrir trúverðugleika slíkrar vinnu að hún sé heildstæð hvað það varðar að
    skoða þennan kafla í sögu Íslands.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi skaðabótalögin get ég a.m.k. sagt að þau eru ekki á
    þingmálaskrá í ár hjá mér en ég þekki þá umræðu sem hann vísar til og er
    almennt þeirrar skoðunar að vel fari á því að endurbæta lög þegar efni
    standa til þess. Um sóknargjöldin vil ég nefna að það er mér mikið
    gleðiefni að okkur sé loksins að takast að vinda ofan af því og rétta hlut
    kirkjunnar af því að kirkjan hefur — talandi um hrun — verið eina
    stofnunin sem enn hefur ekki fengið hlut sinn bættan eftir skerðingar
    hrunsins. Þannig að ég er mjög ánægð með að það hafi tekist í vinnunni í
    tengslum við fjárlagafrumvarpið núna.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>