<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T12:49:10" skst="GÞÞ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 12:50:34 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T12:49:10">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir skýr svör og tek
    undir ánægju hæstv. ráðherra ef rétt reynist varðandi sóknargjöldin. Við
    ræðum skaðabótalögin kannski betur og ég mun fylgja því eftir. En svo að
    ég skilji hæstv. ráðherra: Er hæstv. ráðherra tilbúinn að koma með okkur
    sem erum þeirrar skoðunar að það verði að skoða þessi mál, bæði hver
    framkvæmdin var og, jú, aðdragandinn? En aðalatriðið er að við komum með
    einhverjar niðurstöður sem við getum lært af. Mér finnst augljóst að við
    eigum og verðum að gera það. Skil ég það rétt að hæstv. ráðherra sé
    tilbúinn að fara í þá vinnu? Ég vona að svo sé og mér fannst ég heyra það
    á hæstv. ráðherra. Ég held að það væri mjög skynsamlegt ef hæstv. ráðherra
    myndi vera með og helst hafa forystu um slíkt því að þetta mál fer ekki
    frá okkur. Auðvitað þarf að vanda til verka. <ns:bjalla/> Ég skil að
    hæstv. ráðherra hafi talað með þeim hætti og ég tek undir það. En er það
    rétt að hæstv. ráðherra sé tilbúinn að beita sér fyrir því að við
    rannsökum þessi mál til að læra af þeim?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>