<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="dómsmrh." frhr="0" id="r2026-09-11T12:50:44" skst="ÞorbG" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 12:51:50 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T12:50:44">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Það sem ég er að segja er að mér finnst ekki endilega
    vera góður bragur á því að ætla að taka einn anga kerfisins fyrir og rýna
    hann eingöngu. Það voru settar ákveðnar reglur um hvernig kerfið skyldi
    vinna í eftirmálum fjármálahrunsins. Það féllu dómar, í öðrum málum voru
    sýknur, önnur mál hafa farið fyrir Mannréttindadómstólinn. Ég á við að
    verði farið í þetta skulum við skoða ögn stærri mynd en að ætla eingöngu
    að rýna einstakar embættisfærslur embættismanna. Af því að hann nefnir
    forystu dómsmálaráðherra í þessum efnum: Formaður Sjálfstæðisflokksins
    hefur boðað einhverja slíka tillögu eða jafnvel þegar lagt hana fram. Ég
    held að þingmaðurinn ætti að styðja þá tillögu og vera með henni í því. Ég
    er ekki með neitt slíkt mál á þingmálaskránni núna. En ég held, alveg eins
    og talað er um að það hafi ríkt ákveðið andrúmsloft á þessum árum, að þá
    verði lærdómurinn líka að vera sá að við séum með ís í maga þegar við
    gerum þetta upp og miðum út frá gögnum og staðreyndum en ekki
    tilfinningum.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>