<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T12:52:00" skst="VíðR" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 12:54:07 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T12:52:00">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég vil þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir að fara
    yfir áherslumál sín í fjárlagafrumvarpinu og varpa ljósi á nokkur mikilvæg
    atriði þar. Ég horfi mjög björtum augum á fjárlög þessa málaflokks á næsta
    ári. Það er ljóst að markmið ríkisstjórnarinnar um að verja þessi
    grundvallaratriði samfélags okkar, öryggi almennings og réttarkerfið í
    heild sinni, skína í gegnum þetta fjárlagafrumvarp. Þó að aðhaldskröfur
    séu víða eru þær talsvert minni í þessum málaflokki. Ráðherra hefur líka
    boðað frumvörp í vetur sem styðja við þetta og kannski sérstaklega má
    nefna þar fyrirhugaðar sameiningar lögregluembætta. Lögreglan hefur sýnt
    það í gegnum tíðina að þegar eru stór verkefni þá stendur hún saman og
    leysir málin. Ég held að það séu góð skilaboð inn í vinnuna sem við eigum
    fram undan í vetur í allsherjar- og menntamálanefnd að horfa á hvernig
    lögreglan getur orðið enn þá sterkari saman.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mig langar að beina ljósinu í þessu samtali hér við hæstv.
    ráðherra að fangelsismálum og það voru frumvörp á síðasta ári sem snertu
    stöðuna í fangelsum. Það er ekkert slíkt frumvarp og kannski ekki nein
    þörf á því í vetur. Aftur á móti er skýrt í fjárlagafrumvarpinu að
    fangelsismálin eru þar ofarlega á blaði og mikilvægt að taka þau fyrir.
    Mig langar aðeins að ræða hvernig við megum búast við að staðan verði í
    fangelsismálum, varðandi nýbyggingar, breytingar og lagfæringar á húsnæði
    fangelsanna. Hvernig sjáum við það fyrir okkur í lok ársins? Og aftur
    langar mig að leggja áherslu á mikilvægi þess að við horfum alltaf á
    kerfið í heild sinni, allt frá störfum lögreglu, í rannsóknir, saksóknir,
    dómstólanna og síðan til fullnustu refsinga, að þetta sé allt saman eitt
    heildarferli. En ég spyr sérstaklega í ljósi umræðu á síðasta þingi um
    stöðu fangelsismála: Hvernig sér ráðherra fyrir sér stöðuna í lok næsta
    árs?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>