<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="dómsmrh." frhr="0" id="r2026-09-11T12:54:17" skst="ÞorbG" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 12:56:19 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T12:54:17">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni og formanni allsherjar- og
    menntamálanefndar kærlega fyrir spurninguna. Mér hefur sýnst sem
    pólitískur áhugi á þinginu öllu á fangelsismálum sé vaxandi, sem er
    jákvætt því að þetta er sannarlega málaflokkur sem setið hefur eftir hvað
    varðar fjárfestingar á liðnum árum. Það er gleðilegt að geta sagt frá því
    núna að í ár og vonandi á allra næstu vikum förum við af stað með annars
    vegar upphaf Stóra-Hrauns en líka stækkun á Sogni. Þar erum við að horfa
    til þess að við bætum við 15 nýjum fangelsisplássum. Þegar Stóra-Hraun
    verður tilbúið, og við erum búin að fullfjármagna 1. áfanga þá þegar, en
    þegar fangelsið verður tilbúið, sem verður ekki fyrr en 2031, verða þar
    128 rými. Það er nú kannski kosturinn við að búa í fámennu landi að það
    munar mjög mikið um hvert aukapláss. Það er búið, eins og ég segi, að
    skrifa undir verksamning við verktaka varðandi Stóra-Hraun sem hefur þegar
    hafið undirbúning framkvæmda. Alútboð fyrir byggingarnar sjálfar fer fram
    núna í haust þannig að það er komin veruleg hreyfing á þetta mál. Það er
    vandi á Íslandi og á hinum Norðurlöndunum líka, veit ég, að breytt
    samfélagsgerð, í okkar tilviki mikil fólksfjölgun og þyngri dómar leggst
    allt saman og skapar vandamál inni í fangelsunum og þess vegna er svo
    mikilvægt að við fáum þetta fyrsta öryggisfangelsi. Við höfum verið að
    horfa upp á það um margra ára bil að refsingar hafa verið að fyrnast og
    það er mín von að með þessum aðgerðum sem við erum að stíga núna, og
    jafnframt vegna þess að verið er að nálgast fangelsismálin með heildstæðum
    hætti, séum við að komast á betri stað. En þetta mun taka tíma.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>