<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T12:56:27" skst="VíðR" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 12:57:42 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T12:56:27">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir greinargóð svör og
    góðar og mikilvægar upplýsingar þegar kemur að fangelsismálum. Ég vil
    hvetja hæstv. ráðherra til dáða í þessum málaflokki, ekki eingöngu þegar
    kemur að uppbyggingu húsnæðis heldur líka þegar við horfum til
    endurhæfingar og möguleika þeirra sem sitja í fangelsum og njóta þjónustu
    refsikerfisins. Við höfum það í huga að vinna vel að því, bæði þegar kemur
    að aðstöðumálum og ekki síður að andlegri líðan og öðru varðandi
    endurhæfingu og möguleika á að komast aftur út í samfélagið.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mig langar bara örlítið að velta upp við ráðherrann almannavörnum.
    Það kemur ráðherra væntanlega ekkert á óvart að ég hafi áhuga á þeim
    málaflokki. Hún nefndi uppbyggingu í Skógarhlíð. Það er mikilvægt að
    almannavarnir komist aftur í samvinnuna sem þar var og mig langar líka að
    nefna varðandi frumvarpið sem hefur verið boðað í vetur,
    almannavarnafrumvarpið, hvort hún sjái einhverjar hugsanlegar breytingar á
    því varðandi sameiningu lögregluembættanna. <ns:bjalla/> Erum við að horfa
    á eitthvað kerfislegt tengt þeim málum?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>