<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="dómsmrh." frhr="0" id="r2026-09-11T12:57:50" skst="ÞorbG" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 12:59:01 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T12:57:50">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Kannski fyrst að síðustu spurningunni um Skógarhlíð og
    frumvarpið um almannavarnir. Þar er ein breyting sem ég held að sé mjög af
    hinu góða. Við kippum aftur inn í frumvarpið ákvæði sem var inni fyrir
    árið 2008, að mig minnir, um rannsóknarnefndir. Það finnst mér verulega
    jákvæð breyting.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Aðeins aftur um fangelsismálin. Ríkisstjórnin bætti 230 millj. kr.
    varanlega inn í fangelsismálin í fyrra. Það er upphæð sem munar um, t.d.
    um að auka öryggi starfsfólks og t.d. um það að auka öryggi fanga sjálfra
    inni í fangelsunum. Ég er síðan einlæglega sammála því sem hv. þingmaður
    nefnir um endurhæfingu og betrun og vil nefna það, fyrst við erum að ræða
    þau mál, að ég átti svo góðan fund nýverið með Ásdísi Birnu Bjarkadóttur,
    dóttur fanga, sem hefur gefið út bók handa þeim börnum sem eiga foreldri
    eða aðstandendur í fangelsum. Mjög áhrifaríkur fundur og áhrifarík og
    mikilvæg bók. Það er ekki síst á þessum sviðum sem ég held að við getum
    gert svo miklu betur, að hlúa að aðstandendum þeirra sem afplána í
    fangelsum landsins.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>