<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T12:59:13" skst="SMás" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 13:01:29 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T12:59:13">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir yfirferðina á
    þeim mikilvægu málaflokkum sem eru á hennar forræði. Ég vil aðeins beina
    sjónum að öryggis- og varnarmálum sem voru í umræðu fyrir
    atkvæðagreiðsluna um Evrópusambandið, eða til umræðu að hluta til. Að vísu
    held ég að þau hafi síst ráðið úrslitum hjá meiri hluta kjósenda en þau
    komu upp og voru m.a. nefnd af ýmsum, þ.e. þessi breytta staða í öryggis-
    og varnarmálum sem væri jafnvel ástæða til þess að fara inn í
    Evrópusambandið. Það er auðvitað breyttur heimur og blikur á lofti og að
    mínu mati þessi óásættanlegi tónn og ósmekklegi tónn sem maður hefur
    lítinn húmor fyrir af hálfu t.d. Bandaríkjastjórnar núna með myndbirtingum
    síðustu daga en auðvitað margir aðrir þættir, aðrar grundvallarbreytingar
    og hreyfingar í alþjóðamálunum. Í því umhverfi, þegar ríkisstjórnin leggur
    áherslu á þetta breytta umhverfi, eins og ég skil fjárlögin, er í raun og
    veru verið að lækka framlögin að raunvirði um 0,3% gagnvart
    öryggisþættinum. Landhelgisgæslan lækkar um 5% í útgjöldum. Ef þetta eru
    rangar tölur getur hæstv. dómsmálaráðherra lýst því en þær birtast manni í
    fjárlögunum. </ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég vildi forvitnast um það hjá hæstv. dómsmálaráðherra hvernig hún
    lítur á þessi mál, hvort hún telji sannarlega að Íslendingar séu að gera
    nóg til þess að huga að sínum eigin vörnum ef mönnum er alvara um breytt
    ástand í öryggismálum, hvort það myndi ekki kalla á raunverulega
    uppbyggingu hérna innan lands. Það mætti auðvitað ræða í því sambandi
    stofnun eiginlegrar herdeildar, stofnun íslensks hers. Hvernig lítur
    hæstv. ráðherra t.d. á þann möguleika? Hún nefndi að við værum herlaus
    þjóð en auðvitað er herlaus þjóð, ef hún ætlar að vera fullvalda og
    sjálfstæð, þeim takmörkunum háð a.m.k. að hafa ekki her. Það er auðvitað
    líka eitthvað sem mér finnst alveg eðlilegt að taka til umræðu, þ.e. hvert
    viðhorf hæstv. ráðherra er úr því að öryggismálin og varnarmálin eru í
    þessu ástandi sem þau eru og hvernig hæstv. ráðherra og ríkisstjórnin þar
    með lítur á t.d. hugmyndir um að stofna íslenskan her <ns:bjalla/> ef þeim
    er alvara um þessa breyttu stöðu í varnarmálum en það á ekki að nota hana
    sem tæki … <ns:frammíkall/> — Já, ég er að spyrja um það.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>