<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="dómsmrh." frhr="0" id="r2026-09-11T13:01:38" skst="ÞorbG" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 13:03:29 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T13:01:38">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Já, þingmaður verður að afsaka að ég heyrði ekki
    spurninguna í fyrstu en ég heyri hana nú. Fyrst varðandi
    Landhelgisgæsluna, aðhaldsstigið þar er 2,5%, ekki 5%. Hluti af því sem er
    að falla niður hjá Landhelgisgæslunni eru tímabundin aukin framlög sem lá
    fyrir að myndu renna út um þetta leyti. Það fór hins vegar inn 1,3
    milljarður í fyrra. Nú er aðhaldið um 230 millj. kr., um 2,5%.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Af því að þingmaðurinn spyr um þennan frasa, hina breyttu
    heimsmynd, þá liggur auðvitað fyrir að íslensk stjórnvöld hafa skuldbundið
    sig til að verja 1,5% af landsframleiðslu í öryggis- og varnarmál. Það
    liggur líka fyrir í fjárlagafrumvarpinu núna að það eru aukin framlög til
    öryggis- og varnarmála og ég lít svo á að það sé þá fjárlaganefndar núna í
    framhaldinu að vinna úr því hvernig við formum þau útgjöld. Ég vil líka
    nefna að í nýsamþykktri þingsályktun um varnar- og öryggismál var lögð
    áhersla á það af hálfu fulltrúa allra flokka á þingi að efla hina
    borgaralegu innviði: Landhelgisgæslu, lögreglu, almannavarnir og
    áfallaþol. Ég nefndi að við værum herlaus þjóð. Það verðum við sannarlega
    áfram. Það eru engin áform um að stofna her á Íslandi. Það er mín afstaða
    að við þurfum að setja mjög aukinn þunga, ekki bara í fjárfestingu heldur
    í umræðu og vitundarvakningu um mikilvægi öryggismála. Ég lít svo á að það
    fari mjög vel á því og sé raunar nauðsynlegt í þeim efnum að horfa til
    almannavarna, horfa til greiningardeildar, sérsveitar og
    Landhelgisgæslu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>