<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T13:03:39" skst="SMás" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 13:05:04 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T13:03:39">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég hef
    áhuga á að forvitnast aðeins nánar um viðhorf hennar þess efnis að hér
    beri ekki að stofna íslenskan her. Auðvitað er á vissum stigum nánast
    stigsmunur frekar en eðlismunur á því að vera með Landhelgisgæslu eða
    öfluga innviði á öllum þessum öryggismálasviðum og vera síðan með
    eiginlegan her þó að það sé ákveðinn eðlismunur líka. En þessi spurning,
    þegar menn taka öryggis- og varnarmálin svona alvarlega og hafa svona
    slíkar áhyggjur af því, þá veltir maður fyrir sér hvort það hafi aldrei
    komið til umræðu innan ríkisstjórnar eða t.d. inni í þeim ráðuneytum þar
    sem þessi mál eru til umfjöllunar, að fara í slíkt og þá sem sagt hvers
    vegna ekki. Af hvaða ástæðum telur hæstv. ráðherra ekki hyggilegt að hér
    sé neinn vísir að eiginlegri herdeild? Er það af hugmyndafræðilegum
    prinsippástæðum, ef svo má segja? Er það vegna kostnaðarins? Auðvitað
    myndi kostnaður við slíkt hlaupa á tugum milljarða. Hvað er það? Hvaða
    hugmyndafræðilega afstaða er það sem býr að baki? Ég spyr af einlægri
    forvitni, þótt við áttum okkur öll á því að fyrst og fremst sé forvörnin
    okkar hérna á Íslandi einmitt áfallaþolið samfélag og sterkir innviðir.
    Það er okkar stóra öryggismál. <ns:bjalla/> En hitt er spurning sem vaknar
    hjá fólki á þessum síðustu og verstu tímum, ekki síst þegar menn gera mjög
    mikið úr breyttum heimi í öryggismálum.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>