<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="dómsmrh." frhr="0" id="r2026-09-11T13:05:10" skst="ÞorbG" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 13:06:29 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T13:05:10">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég verð svo forvitin þegar ég hlusta á hv. þingmann
    að mig langar til að spyrja hann hvort hann sé áhugamaður um að stofna
    íslenskan her. En ég get svarað því að það hefur ekki farið fram umræða í
    ríkisstjórn um að stofna íslenskan her. Ég get svarað fyrir mitt leyti að
    ég er kannski ekki fyrst kvenna til að mæta í mótmælagöngu gegn NATO eða
    neitt slíkt. Ég er mjög stolt af því að Ísland tilheyri NATO. Ég sé bara
    ekki fyrir mér að á Íslandi séum við að fara að setja fjárfestingu í það,
    að við höfum mannafla í það og að það sé skynsemi í því að stofna
    íslenskan her. Ég get hins vegar nefnt að ég merki á Norðurlöndunum, ég
    nefni t.d. Svía, þeir eru með sérstakt ráðuneyti almannavarna, að þar er
    mikil áhersla á hinar borgaralegu varnir. Þar er verið að horfa til þess
    að hin breytta heimsmynd sýnir okkur líka hvað breytt stríð þýðir. Drónar
    yfir Kastrup-flugvelli, engin eiginleg árás og enginn mannskaði en þetta
    lamar samgöngur í heilu landi. Allt viðbragð okkar þarf líka að taka mið
    af því að nútímaárásarstríð, <ns:bjalla/> nútímaógn og nútímaárás lítur
    ekki út eins og sú sem við þekkjum í sögulegu samhengi og þess vegna þarf
    viðbragð líka að taka mið af því.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>