<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T13:06:45" skst="BÞT" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 13:09:06 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T13:06:45">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Mig langar að koma inn á málefni flóttafólks
    og útlendinga. Ég hef starfað við málaflokkinn hjá Útlendingastofnun og
    síðar haft aðkomu að málaflokknum í starfi sveitarstjóra í samfélagi sem
    hefur tekið á móti flóttafólki. Ég þekki þetta því ágætlega, bæði
    stjórnsýsluna og þau áhrif sem móttaka fólks hefur á nærsamfélagið. Mér er
    sérstaklega hugleikin koma flóttafólks frá Úkraínu og fagna því að hæstv.
    dómsmálaráðherra boðar frumvarp þar sem hámark tímabundinnar verndar
    verður lengt úr fimm árum í sex ár. Þannig myndi Ísland fylgja öðrum
    Evrópuríkjum í þessum málum. Það væru köld skilaboð ef skyndilega ætti að
    enda dvalartíma fólks frá Úkraínu eins og ástandið er heima
    fyrir.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Hins vegar er einnig mikilvægt að úrræðið
    tímabundin vernd sé einmitt tímabundið úrræði. Í boðuðu frumvarpi er því
    lagt til að sérstök heimild til mannúðarleyfis að lokinni tímabundinni
    vernd falli brott. Þess í stað geti fólk sem fékk tímabundna vernd, eins
    og aðrir útlendingar, sótt um dvalarleyfi að henni lokinni á þeim
    grundvelli sem endurspeglar raunverulega stöðu þess hér á landi, t.d.
    vegna atvinnu, náms eða fjölskyldutengsla. Þetta finnst mér skynsamleg
    nálgun.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Stór hluti þeirra Úkraínumanna sem hingað hefur komið hefur fótað
    sig vel í íslensku samfélagi. Um það þekki ég sjálfur nærtæk dæmi. Margir
    hafa farið beint út á vinnumarkaðinn, stundað nám, tekið virkan þátt í
    samfélaginu og fest hér rætur. Við þær aðstæður er eðlilegt að þeir sem
    vilja búa hér áfram og uppfylla skilyrði laganna geti byggt umsókn um
    dvalarleyfi á stöðu sinni og þeim tengslum sem þeir hafa raunverulega
    myndað við íslenskt samfélag. Um leið þarf lagaumgjörð útlendingamála að
    vera skýr, skilvirk og fyrirsjáanleg. Það varðar ekki aðeins
    einstaklingana sem um ræðir heldur líka meðferð opinberra fjárheimilda.
    Skýrari reglur og skilvirkari málsmeðferð eiga að draga úr óþarfa töfum og
    kostnaði og tryggja að fjármunir nýtist þar sem þeirra er þörf. Það á vel
    við þegar við ræðum fjárlög ríkisins. Við þurfum að geta veitt þeim vernd
    sem á henni þurfa að halda en jafnframt tryggt að kerfið sé sjálfbært,
    skilvirkt og að stjórnvöld hafi góða stjórn á málaflokknum.<ns:bjalla/>
    Mig langar því að spyrja hæstv. dómsmálaráðherra: Hver telur hún að séu
    mikilvægustu skrefin sem þegar hafa verið stigin til að ná betri stjórn á
    útlendingamálum? Hver eru mikilvægustu næstu skref í þeirri
    vinnu?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>