<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="dómsmrh." frhr="0" id="r2026-09-11T13:09:15" skst="ÞorbG" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 13:11:17 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T13:09:15">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir mjög góða
    spurningu. Ég myndi vilja segja þetta: Í of langan tíma hefur umræða um
    útlendingamálin verið eftirlátin jöðrunum, það hafa verið þeir sem tala um
    að hleypa öllum hingað inn, tala um opin landamæri, og svo þeir sem tala
    um lokuð landamæri. Hvorug leiðin er farsæl fyrir Ísland þannig að ég er
    ánægð með að ríkisstjórnin sé að vinna út frá stefnu sem vonandi stenst
    tímans tönn. Markmiðið hefur verið afar skýrt: Við ætlum að ná stjórn á
    þessum málaflokki. Við viljum stjórn á þessum málaflokki og við viljum
    skynsamlegt regluverk. Það þarf að vera ákveðin festa í því. En svo viljum
    við líka geta verið stolt af því þegar við lítum til baka að geta sagt:
    Við höfum tekið vel á móti fólki.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þess vegna er ég sjálf þeirrar skoðunar að við eigum að bæta enn
    frekar í, t.d. þegar kemur að íslenskukennslu, því ég lít svo á að það sé
    algjör lykill að því að geta tekið þátt í samfélaginu og njóta hér
    raunverulega jafnra tækifæra. Þingmaðurinn nefnir Úkraínu og það er búið
    að afgreiða úr ríkisstjórn frumvarp sem lengir heimild til dvalar úr fimm
    árum í sex. Í þessum málum hvað Úkraínubúa varðar höfum við sagt tvennt:
    Við stöndum með Úkraínubúum alla leið í þessu stríði. Hitt er að við
    göngum í takti við Evrópu þannig að við höfum gætt þess mjög vandlega að
    fylgja því sem Evrópa er að gera í þeim málaflokki.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En stutta svarið varðandi mikilvægustu áfangana: Hér voru afgreidd
    fjögur frumvörp í fyrra, allt frá því að vera með heimildir til að
    afturkalla alþjóðlega vernd og brottfararstöðina, við erum með hertari
    skilyrði fyrir námsmannaleyfi, við erum með afturköllun alþjóðlegrar
    verndar og öll Schengen-málin. En stóra stefið er einfaldlega skýr stefna
    og stjórn á málaflokknum.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>