<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T13:11:28" skst="BÞT" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 13:12:11 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T13:11:28">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir
    greinargóð svör. Ég er ánægður með svarið. Ég hjó eftir því að þú nefndir
    íslenskukennsluna. Ég tel að þetta sé algjört lykilatriði í inngildingu og
    að taka vel á móti fólki sem hingað kemur. Ég legg á það ofuráherslu og
    gerði það sem sveitarstjórnarmaður úti á landi og held að við höfum náð
    býsna góðum árangri þar, alla vega heyrðum við að eftir því var tekið. Ég
    er svo sem ekki með neina konkret spurningu fyrir þig á þessu sviði en
    hvet þig til að standa með þeim undirstofnunum sem starfa í þessum
    málaflokki.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>