<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="dómsmrh." frhr="0" id="r2026-09-11T13:12:24" skst="ÞorbG" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 13:13:32 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T13:12:24">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Í framhaldi af sjónarmiðum þingmannsins þá er það
    þannig að þó að þetta sé ekki undir hatti dómsmálaráðuneytisins þá sést
    það í fjárlagafrumvarpinu núna að það er varið 543 milljónum til
    íslenskukennslu. Það finnst mér vera mjög jákvætt. Svo eru aðrir þættir.
    Við getum skoðað t.d. hver munurinn á íþróttaþátttöku íslenskra barna og
    barna sem eru af erlendum uppruna er. Það er mjög auðvelt að sjá hvar það
    er sem aðstöðumunurinn brýst út og ég held að leiðarstef í inngildingu,
    hvort sem við erum að tala um fullorðna eða börn sem hingað koma, sé
    einmitt tungumálið og íslenskukennslan. Þar sem ég ætla ekki að vera í
    inngildingu er varðandi glæpamenn sem koma til landsins. Það er ekki
    markmið mitt að inngilda glæpamenn inn í samfélagið að lokinni afplánun og
    þess vegna kom líka eitt af þeim frumvörpum sem við fórum í, með heimildir
    til að afturkalla alþjóðlega vernd fyrir glæpamenn og síðan brottvísun
    þeirra sem hafa hlotið dóm hér á landi. Þetta er líka að skapa rými í
    fangelsum landsins þá þegar.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>