<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T13:13:49" skst="SVS" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 13:16:00 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T13:13:49">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv.
    dómsmálaráðherra fyrir hennar svör og hennar ræðu hér í upphafi
    umræðunnar. Það sem mig langar að beina athygli og sjónum að í þetta
    skipti eru sýslumennirnir. Það væri ágætt að fá smá útskýringar varðandi
    þá. Nú sér maður í fjárlagafrumvarpinu að heildarfjárheimild til
    málaflokksins lækkar um 206 millj. kr. frá fjárlögunum, að frátöldum
    launa- og verðlagsbreytingum. En það er þessi aðhaldskrafa upp á sömu
    upphæð upp á krónu, sem er 206 millj. kr., sem mig langar aðeins að ræða
    hér við hæstv. ráðherra.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ástæðan fyrir því að ég er að spyrja er sú að nú liggur fyrir að
    við erum að fara í breytingar á skipan sýslumanna um áramót. Einhvern
    veginn hef ég trú á því, miðað við mín kynni af sameiningum stofnana, að
    þetta sé kostnaðarsamt á fyrsta ári. Þetta er kostnaðarsamt þó að hægt sé
    að reikna sig inn í einhvern sparnað til framtíðar. Ef ég man umræðuna
    rétt var það nú þannig að sá sparnaður sem átti að nást með þessari
    sameiningu átti að renna til sýslumannsembættanna. Þetta var ekki gert í
    hagræðingarskyni þannig séð heldur átti að ná betri stýringu á því
    fjármagni sem inni í kerfinu er. Þess vegna spyr ég hæstv. ráðherra
    hvernig hún sjái fyrir sér, miðað við þann niðurskurð og þá aðhaldskröfu
    sem er á sýslumannsembættunum í þessu fjárlagafrumvarpi, að það muni í
    raun og veru ganga og reynast og hvort inni í fjárlögunum <ns:bjalla/> sé
    búið að gera ráð fyrir þeim kostnaði sem mun falla til út af sameiningu
    stofnana.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>