<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="dómsmrh." frhr="0" id="r2026-09-11T13:16:08" skst="ÞorbG" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 13:18:12 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T13:16:08">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni kærlega
    fyrir fyrirspurnina. Varðandi sýslumenn, af því að ég nefndi það nú með
    lögreglu, ákæruvald og dómstóla að þessar einingar eru sérstaklega varðar
    fyrir aðhaldi, þá á það ekki við um sýslumenn en það aðhald sem birtist
    hér tengist í sjálfu sér ekki sameiningunni. Heildarfjárheimild
    málaflokksins eru, eins og fram kom, um 4,2 milljarðar kr. og lækkar um
    tæpar 207 millj. kr. Þannig að aðhaldskrafan er um 4,8%. Aðhald vegna
    fækkunar stöðugilda er um 115 millj. kr. Þar minni ég á það sem sett var
    inn í frumvarpið að um 65% starfa eru merkt landsbyggðinni. Þannig að ég
    sé fyrir mér að komi til fækkunar stöðugilda verði það ekki þar. Allt er
    þetta nú í vinnslu en eins og ég segi er þetta aðhald ekki vegna
    sameiningarinnar og það er alveg rétt sem þingmaðurinn nefnir að
    sameiningarferli og sameiningarvinna kostar alltaf aðeins í byrjun en það
    er verið að ræða um 1% fækkun stöðugilda hjá ríkinu. Hlutdeild sýslumanna
    í því sambandi er kannski um sjö stöðugildi eða svo. Þegar við horfum
    síðan til þess að þegar lögin taka gildi þá erum við að fækka
    sýslumönnunum sjálfum og þegar litið er til þessa 1%, sýslumenn farnir
    utan sýslumanns Íslands sem eftir starfar, þá hefur þetta ekki áhrif á þau
    störf sem þarna eru. Þetta eru opinber innkaup og sértækt aðhald í
    tengslum við önnur atriði. En það er auðvitað alveg áskorun sem
    þingmaðurinn nefnir að sameiningar kosti í byrjun.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>