<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T13:18:21" skst="SVS" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 13:19:46 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T13:18:21">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir svörin.
    Það er alveg rétt og ég svo sem gerði mér grein fyrir því að sú
    aðhaldskrafa sem birtist í fjárlögunum er ekki tengd þessum sameiningum,
    hefur ekkert með þær að gera. Þetta er bara aðhaldskrafan sem stjórnvöld
    leggja á sínar undirstofnanir og svo erum við með aðila eins og lögregluna
    og fleiri, Landhelgisgæsluna, heilbrigðisstarfsmenn, sem eru undanþegnir
    þessari aðhaldskröfu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En spurningin mín er kannski bara þessi: Ég sé það ekki, hvorki í
    textanum um sýslumenn í frumvarpinu né finn neinar tölur um það, en er
    gert ráð fyrir fjármagni á fjárlögum sérstaklega eyrnamerktu þessari
    innleiðingu nýja kerfisins? Er gert ráð fyrir einhverju fjármagni
    sérstaklega til þess að standa straum af þeim kostnaði sem mun falla til
    vegna sameiningarinnar, sér í lagi í ljósi orða hæstv. ráðherra um
    aðhaldskröfuna eða fækkun ríkisstarfsmanna, þessara sjö? <ns:bjalla/> Ef
    það er hagræðingin sem menn ætla að ná út úr því, þá er ljóst að það
    fjármagn nýtist ekki í sameininguna. Það kemur annars staðar fram.
    <ns:bjalla/> Ég vildi aðeins fá upplýsingar um þetta á einni mínútu. Ég
    veit að það er lítill tími, virðulegur forseti.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>