<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="dómsmrh." frhr="0" id="r2026-09-11T13:19:55" skst="ÞorbG" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 13:21:06 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T13:19:55">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég reyni að svara þessu skarpt og snöggt. Það er ekki
    sérstakt fjármagn inni í þessu en ég vil þó geta þess að það er sjóður
    innan fjármálaráðuneytisins sem dómsmálaráðuneytið hefur sótt sér fjármagn
    í, stuðningssjóður fyrir hagræðingarverkefni og sameiningarverkefni. Það
    hefur gríðarlega mikil vinna átt sér stað inni í dómsmálaráðuneytinu í
    aðdraganda og eftir að frumvarpið var samþykkt. Með því verklagi styðjum
    við nýjan sýslumann og nýtt sýslumannsembætti þannig að aukinn kostnaður,
    vinna og stuðningur við nýtt embætti fara að miklu leyti fram í
    ráðuneytinu sjálfu í þremur starfshópum sem myndaðir hafa verið. Það hefur
    dugað ágætlega hingað til.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hitt er síðan það að þegar við leggjum fram hallalaus fjárlög í
    fyrsta sinn í áratug birtist það auðvitað einhvers staðar. Í mínu
    ráðuneyti, eins og ég segi, eru ákveðnir málaflokkar undanskildir. Hér er
    ákveðin hagræðingarkrafa. Ég stend með henni en nefni það að í
    <ns:bjalla/> forvinnu málsins höfum við getað sótt í sjóð í ranni
    fjármálaráðuneytisins.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>