<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T13:21:27" skst="NTF" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 13:23:38 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T13:21:27">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Þegar varnarliðið yfirgaf Ísland í september árið
    2006, fyrir réttum 20 árum, hurfu úr landi fimm öflugar björgunarþyrlur.
    Síðan hafa Íslendingar markvisst reynt að efla viðbragðsgetu
    Landhelgisgæslunnar á þessu sviði. Gæslan rekur nú þrjár leiguþyrlur af
    gerðinni Airbus H225 og leigusamningur um þær gildir til ársins 2032. Ég
    hef áður bent á að stórar björgunarþyrlur eru ekki hilluvara. Kaup á
    slíkum þyrlum krefjast vandaðs undirbúnings, skýrrar þarfagreiningar og
    góðs skipulags. Því er mikilvægt að hefja þessa vinnu sem fyrst. Að mínu
    mati er endurnýjun þyrluflota Landhelgisgæslunnar eitt besta verkefnið sem
    unnt er að staðsetja innan 1,5% ramma Atlantshafsbandalagsins. Þessi 1,5%
    rammi er vegna varnartengdra innviða, viðnámsþróttar og borgaralegs
    viðbúnaðar. Þyrlurnar myndu í senn styrkja varnarviðbúnað Íslands,
    almannavarnir, leit og björgun, sjúkraflug og öryggi á
    Norður-Atlantshafi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það sem mig langaði fyrst og fremst að spyrja út í — við tókum
    þessa umræðu líka í tengslum við fjárlagaumræðuna fyrir ári en það hefur
    ýmislegt gerst á þeim tíma. Bæði var rammagrein í fjármálaáætluninni sem
    við samþykktum núna í vor og stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fékk svar
    frá dómsmálaráðuneytinu í júní varðandi þyrlukost Gæslunnar og kostnað við
    að setja þyrlu á Akureyri, sem var 1.100 millj. kr., 500 millj. kr. fyrir
    leigu á þyrlu og 600 millj. kr. fyrir þjálfun og annan kostnað vegna
    áhafna. Síðan kom á sama tíma, síðastliðinn vetur, stefna Íslands í
    varnar- og öryggismálum. Mig langar því að spyrja hæstv. dómsmálaráðherra
    um vinnuna í ráðuneytinu vegna þess að þessi ár eru fljót að líða og það
    þarf virkilega langan fyrirvara. Björgunarþyrlur eru ekki hilluvara,
    stórar þyrlur. <ns:bjalla/> Hver er staða málsins í dag?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>